Iceland Express hefur ákveðið að fjölga ferðum til og frá New York frá tveimur í viku uppí fjórar ferðir á viku í september.  Um er að ræða um 4000 viðbótarsæti.

Í fréttatilkynningu er þetta haft eftir Matthíasi Imsland forstjóra Iceland Express: „Þessi nýja leið okkar hefur mælst gríðarlega vel fyrir. Sætanýting okkar á þessari leið er vel yfir 90 prósent og það er langt umfram það, sem við þorðum að vona.“

Í tilkynningunni segir að töluverður fjöldi erlendra farþega Iceland Express hafi haft viðdvöl á Íslandi á flugi sínu til og frá New York undanfarnar vikur með tilheyrandi hagsbótum fyrir samfélagið.  Ljóst sé af bókunum, að fjölmargir farþegar hyggjast staldra við hérna næstu vikur á leið sinni yfir hafið.