Icelandair flutti rúmlega 172 þúsund farþega í október sl., sem er 18% fjölgun á milli ára í októbermánuði. Framboð á flugsætum jókst um 21% á milli ára og sætanýtingin nam tæplega 81%.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group, móðurfélags Icelandair.

Icelandair hefur nú flutt tæplega 1,77 milljón farþega það sem af er ári sem er 15% fjölgun á milli ára. Þá hefur framboð félagsins aukist um 14% á milli ára, þannig að farþegafjöldinn hefur aukist lítillega umfram framboð. Sætanýting félagsins hefur aukist um 1,8% á milli ára.

Nú þegar tíu mánuðir eru liðnir af árinu hefur Icelandair flutt fleiri farþega en allt árið í fyrra þegar félagið flutti tæplega 1,75 milljón farþega, samanborið við tæplega 1,5 milljón farþega árið 2010 og tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009. Farþegafjöldi félagsins jókst þannig um 18% á milli ára  fyrra.

Mikil aukning í fraktflutningum á vegum samstæðunnar

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 1% á milli ára í október þegar félagið flutti tæplega 29 þúsund farþega. Framboð félagsins dróst saman um 12% á milli ára í október en sætanýtingin jókst um 9% og nam tæplega 77% í október.

Bæði farþegafjöldi  og framboð Flugfélags Íslands stendur nú að mestu í stað á milli ára það sem af er þessu ári .

Nýting flugflota sem nýttur er til útleigu en er í eigu Icelandair Group stóð í stað á milli ára, og var 100% sem þýðir að allar vélar félagsins voru í verkefnum í október. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Seldum blokktímum hefur þó fækkað um 9% á milli ára það sem af er þessu ári en það má að hluta til rekja til þess að fraktvélar í leiguflugsverkefnum eru einni færri en í fyrra.

Fraktflug á vegum samstæðunnar, sem að mestu fer fram á vegum Icelandair Cargo, jókst um 14% á milli ára í október og hefur aukist um 18% á milli ára það sem af er þessu ári. Þá hefur framboðið af fraktflugi aukist um 7% á milli ára það sem af er ári.

Nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar jókst um rúm4% á milli ára í október en hefur þá aukist um 3,7% það sem af er ári. Á sama tíma hefur framboðið af hótelrými aukist um 15% það sem af er ári. Seldum gistinóttum fjölgarði um 33% á milli ára í október og hefur fjölgað um 20% það sem af er ári.