Icelandair hefur fellt niður 26 flug félagsins á morgun föstudag 9. maí vegna verkfalls Félags íslenskra atvinnuflugmanna, sem stendur frá klukkan 06.00 til kl 18.00.

Ákvörðun um að fella niður flugin með þessum fyrirvara er tekin til þess að eyða óvissu og gefa farþegum tækifæri á því að gera nauðsynlegar ráðstafanir. Í heild eru um 4500 farþegar, mest erlendir ferðamenn,  bókaðir á þau 26 flug sem um er að ræða og er upplýsingum komið til þeirra um stöðuna m.a. með textaskilaboðum og tölvupósti. Mikið álag er á þjónustuveri félagsins.

„Þó svo viðræður standi yfir hjá sáttasemjara þá komust við ekki hjá því að grípa til þessara ráðstafana nú til að koma í veg fyrir það öngþveiti sem skapast mun á morgun verði ekki af samningum. Við biðjum viðskiptavini félagsins velvirðingar á þeirri miklu röskun sem verkfallið veldur og gerum allt sem í okkar valdi stendur þeim til aðstoðar,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að verkfall flugmanna valdi Icelandair miklum vonbrigðum, enda standi þeim til boða sambærilegar launahækkanir og aðrir í samfélaginu hafi samið um að undanförnu, þar á meðal meirihluti starfsmanna Icelandair Group.

Þá segir að Icelandair muni eftir fremsta megni reyna að leysa úr þeim vanda sem niðurfelling flugsins skapar viðskiptavinum m.a. með því að flytja þá yfir á flug annarra flugfélaga eins og hægt er, einnig að færa farþega á önnur flug Icelandair til og frá þessum áfangastöðum ef það er unnt eða breyta farmiðum með öðrum hætti. Þeir sem hætta við ferð sína munu fá endurgreitt. Nánari upplýsingar eru á Icelandair.is.