LatCharter Airlines dótturfélag Loftleiða Icelandic hefur gert samning við maltneska ríkisflugfélagið Air Malta um leigu á einni Airbus A320 þotu til tveggja ára.

Í tilkynningu Iclandair kemur fram að Airbus þotan, sem áður var í rekstri hjá Air Canada, verður sú þriðja sem bætist við flota LatCharter á þessu ári. Fimm þotur verða þar með í rekstri hjá LatCharter Airlines. LatCharter tekur þoturnar á leigu frá bandaríska flugvélaleigufyrirtækinu KJ Aviation.

Loftleiðir, sem er eitt dótturfélaga Icelandair Group, eignuðust LatCharter Airlines á miðju síðasta ári. Félagið hafði þá tvær Airbus þotur í rekstri, en sá floti hefur vaxið um 150 prósent með þessum samningi. Gert er ráð fyrir að floti félagsins vaxi enn frekar á næstunni. Valery Litanski rekstrarstjóri LatCharter segir það ánægjulegt hversu vel hefur tekist til við innleiðinguna á nýju þotunum.

Sigþór Einarsson stjórnarformaður LatCharter og Loftleiða-Icelandic segir um samninginn í tilkynningunni: "Hér er að nást góður áfangi í þeirri markaðssókn okkar sem lagt var upp í með kaupunum á LatCharter Airlines. Meginmarkmið með þeim kaupum var að breikka vöru- og þjónustuframboð Loftleiða-Icelandic á sviði alþjóðlegra flugvélaviðskipta. Það er ánægjulegt að sjá að þessi stefna okkar er að skila árangri hraðar en björtustu vonir stóðu til.?

Air Malta ríkisflugfélag Möltu var stofnað árið 1973 og hefur nú 13 flugvélar í rekstri. Leiðakerfi þeirra spannar vestur-, og mið- Evrópu og norðurströnd Afríku.