Verð á hlutabréfum í Icelandair lækkaði um 2,73% í 148 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Marel lækkaði næst mest eða um 1,48% í 216 milljóna króna viðskiptum í dag.

Aðeins þrjú félög hækkuðu í dag og voru það Reginn, Eik og Síminn. Síminn hækkaði mest eða um 0,66% í 159 milljóna króna viðskiptum. Eik hækkaði næst mest eða um 0,35% í 96 milljóna króna viðskiptum.

Hlutabréfavísitala Aðalmarkaðarins lækkaði um 0,98% en heildarveltan nam 1,1 milljarði.