Matsfyrirtækið Moody´s hefur sent frá sér álit þar sem kemur fram að lögsókn yfirvalda í Bretlandi og  Hollandi fyrir hönd innstæðutryggingarsjóða þeirra  á hendur Tryggingarsjóðiinnstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi hafi engin áhrif á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands.

Einkunn ríkissjóðs er Baa3 með stöðugum horfum. Vísað er í úrskurð EFTA-dómstólsins frá árinu 2013 um að engin greiðsluskylda vegna Icesave-reikninga hvíli á íslenska ríkinu.

Tryggingasjóður innistæðueigenda tilkynnti í síðustu viku að tryggingasjóður innistæðueigenda í Bretlandi og hollenski seðlabankinn hefðu höfðað málsókn vegna Icesave-málsins. Fullyrt var í þeirri tilkynningu að sjóðurinn væri krafinn um 556 milljarða íslenskra króna.