Ákvörðun Moody‘s um að lækka lánshæfismat sjóðsins byggir ekki á nýjum fjárhagsupplýsingum úr rekstri sjóðsins, að því er segir í tilkynningu frá sjóðnum. Þar segir að sjóðurinn muni birta ársuppgjör fyrir árið 2012 eftir um það bil mánuð. Að mati Íbúðalánasjóðs hafa engir atburðir átt sér stað sem ættu að leiða til breytinga á stöðumati fyrir sjóðinn.

Í tilkynningunni er einnig vísað í forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag, en þar er dregin upp dökk mynd af stöðu Íbúðalánasjóðs. Í tilkynningu sjóðsins segir að þessi mynd sé höfð eftir ónafngreindum sérfræðingumog byggi ekki á nýjum upplýsingum. Verið sé að vísa í mat hagfræðings Samtaka fjármálafyrirtækja.