Ingi Björn Ágústsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri upplýsingatæknisviðs Ormsson. Ingi Björn mun stýra sölu á ýmsum tækjum og lausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir, aðallega Samsung tölvum, spjaldtölvum, prenturum og myndlausnum.

Ingi Björn var áður sölustjóri hjá Advania en þar starfaði hann síðastliðinn níu ár. Ingi Björn er viðskiptafræðingur að mennt og lauk B.S.námi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2009. Ingi Björn er kvæntur Kristínu Vilborgu Þórðardóttur hjúkrunarfræðinema og eiga þau þrjú börn.