Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir málflutning „svokallaðs loftslagssérfræðings ASÍ“, sem heldur því fram að íslensk fyrirtæki geri lítið til að draga úr mengun, fjarri öllum sannleika. „Innihaldslaust þvaður af þessum toga er Alþýðusambandi Íslands til lítils sóma,“ segir Halldór Benjamín í aðsendri grein á Vísi.

Auður Alfa Ólafsdóttir, sem starfar sem sérfræðingur í umhverfis- og neytendamálum hjá ASÍ, sagði í viðtali við Stöð 2 að fyrirtæki „geta einhvern veginn bara mengað áfram og hafa gert lítið til að breyta framleiðslu og starfsemi, til þess að draga úr mengun. En hagnast á sama tíma.“

Hún sakaði fyrirtæki um að færa ábyrgð í loftslagsmálum yfir á einstaklinga og gagnrýndi stjórnvöld fyrir að veita fyrirtækjum, sér í lagi þau sem starfa í sjávarútvegi, fjárhagslegan stuðning til að draga úr mengun.

Halldór Benjamín hafnar þessum málflutningi og segir almenn fyrirtæki sýna ábyrgð, halda losunarbókhald og leita leiða til að draga úr kolefnisspori sínu. Enginn vafi sé um að unnt er að ná meiri árangri við orkuskipti en til þess þurfi að virkja og ryðja burt hindranir sem tefji allar framkvæmdir. Hann tekur svo fyrir aðgerðir í loftslagsmálum í fimm geirum.

„Ekki getur verið átt við fyrirtæki í sjávarútvegi sem hafa endurnýjað fiskiskipin í stórum stíl undanfarin ár, hagrætt mikið og dregið þar með úr allri losun.

Ekki getur þetta átt við fyrirtæki í orkugeiranum sem hafa unnið mikið starf að draga úr losun og þróað aðferðir til að binda kolefni í jarðlögum sem geta skilað ótrúlegum árangri á komandi árum.

Þetta á heldur ekki við fyrirtæki í stóriðju sem falla undir viðskiptakerfi með losunarheimildir sem gerir alla losun stöðugt dýrari og hefur hvatt þau til að vera í fremstu röð á sínu sviði.

Þetta á heldur ekki við fyrirtæki sem stunda loftferðir sem hafa endurnýjað flugflota sinn með stöðugt minni eldsneytisnotkun. Né á þetta við um skipafélögin sem hafa endurnýjað farkosti sína til að minnka losun og auka hagræðingu,“ segir Halldór Benjamín.