Til að koma til móts við athugasemdir ferðaþjónustuaðila hefur Isavia ákveðið að bæta við millistærðarflokki sem tekur til hópferðabifreiða sem taka 20-45 farþega í nýtt gjaldtökufyrirkomulag af bílastæðum fyrir hópferðabifreiðar við Keflavíkurflugvöll. Auk þess verður gjaldið lægra fyrstu sex mánuðina til að veita ferðaþjónustuaðilum möguleika að aðlaga sig að breyttu fyrirkomulagi að því er segir í fréttatilkynningu

Þann 1. mars næstkomandi mun Isavia hefja gjaldtöku á stæðum fyrir hópferðabifreiðar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Frá því að tilkynnt var um gjaldtökuna í desember 2017 hefur Isavia borist ábendingar, meðal annars frá aðilum í ferðaþjónustu að gjaldflokk hafi vantað fyrir millistærð af hópferðabifreiðum en líkt og áður sagði hefur Isavia ákveðið að koma til móts við þær ábendingar.

Frá 1. mars til 31. ágúst 2018 greiðir hópferðabifreið sem tekur allt að 19 farþega því 3.200 krónur fyrir hvert skipti sem farþegar eru sóttir í flugstöðina,  20-45 farþega bifreið greiðir 8.900 krónur og bifreið sem tekur 46 farþega eða fleiri greiðir 12.900 krónur. Frá 1. september 2018 greiða minnstu bifreiðarnar 4.900, millistærð 12.500 og stærstu 19.900 krónur. Ekkert gjald verður tekið fyrir að skila farþegum í flugstöðina.