Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í „A“ úr „A-“ á langtímaskuldbindingum í innlendum og erlendum gjaldmiðli. Þetta er í fjórða sinn sem Fitch hækkar lánshæfi ríkissjóðs á þessu ári.

Helstu drifkraftar að baki hækkuninni eru sagðar vera efnahagsstöðugleiki, batnandi ytri staða þjóðarbúsins og skuldalækkun hins opinbera ásamt öflugum hagvexti.

„Þetta eru ánægjulegar fréttir fyrir nýja ríkisstjórn. Hækkun lánshæfiseinkunnarinnar staðfestir trú sérfræðinga Fitch á styrk hagkerfisins og á þau markmið sem sett eru í sáttmála ríkisstjórnarinnar um að áfram verði hlúð að stöðugleika í efnahagsmálum,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Hækkunin mun hafa jákvæð áhrif á vaxtakostnað ríkisins og annarra aðila sem taka lán, þar með talið banka, orkufyrirtækja og annarra innlendra fyrirtækja, sem að lokum mun skila sér í bættum hag heimila,“ segir Bjarni.