Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Íslandsbanka á hann í dag 55 íbúðir á ýmsum byggingastigum og 16 atvinnurými. Um sölu fullnustueigna bankans gilda strangar reglur og felur bankinn fasteignasölum að selja slíkar eignir fyrir sig.

Íslandsbanki á fasteignafélagið Laugarakur að fullu en hann eignaðist það félag um mitt síðasta  ára. Félagið er hýst undir eignaumsýslufélagi bankans - Miðengi.