Á morgun mun eiga sér stað fyrsta skráning skuldabréfa útgefnum af íslensku fjármálafyrirtæki frá hruni. Um er að ræða svokölluð sértryggð skuldabréf útgefin af Íslandsbanka.

Páll Harðarson, forstjóri Nasdaq OMX Iceland, og Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, munu af því tilefni segja nokkur orð fyrir opnun markaða, og hringja Kauphallarbjöllunni klukkan 9:30.