Hæstiréttur kvað úr um það í gær að Landsbankanum hefði verið óheimilt að reikna seðlabankavexti afturvirkt á gengistryggð bílalán og kaupleigusamninga. Íslandsbanki hefur nú þegar endurreiknað 7.200 bílalán og kaupleigusamninga í samræmi við dóma Hæstaréttar sem féllu á síðasta ári um hvernig fjármálafyrirtæki skyldu endurreikna ólögmæt gengistryggð lán, svonefndir kvittanadómar. Kemur þetta fram í tilkynningu frá bankanum.

Þar segir að eftir fyrri dóminn, sem féll í febrúar 2012, hafi mörgum spurningum enn verið ósvarað um það með hvaða hætti endurreikningur skyldi framkvæmdur og til hvaða lána dómurinn tæki. Bankarnir, með samþykki Samkeppniseftirlits, völdu 11 dómsmál til að svara þeim álitamálum sem enn stóðu eftir dóminn. Fjögur þeirra voru á vegum Íslandsbanka. Íslandsbanki segir að seinni dómurinn, sem féll í október, hafi víkkað fordæmisgildi fyrri dómsins og skýrt hvernig lán sem hafa verið í skilum skyldu endurreiknuð.

Í kjölfarið tók Íslandsbanki af skarið og féll frá dómsmálum til að flýta endurútreikningi. Mat bankinn það svo að dómarnir tækju einnig til skammtímalána, svo sem bílasamninga, og ákvað því að bíða ekki eftir frekari dómum. Ergo, fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka, hóf strax endurútreikning og hefur í dag endurreiknað 7.200 bílalán og kaupleigusamninga.