Íslandsbanki ætlar að sameina starfsemi höfuðstöðva bankans á einn stað á Kirkjusandi, en starfsemin fer nú fram á fjórum stöðum. Verða núverandi höfustöðvar bankans á Kirkjusandi stækkaðar og munu framkvæmdirnar kosta um þrjá milljarða króna.

Stækkunin verður með viðbyggingu við suðurenda hússins, en stærsta breytingin mun felast í flutningi á upplýsingatækni- og rekstrarsviði bankans frá Lynghálsi á Kirkjusand, en á því sviði starfa nú um 300 manns.

Samkvæmt upplýsingum bankans mun töluverð hagræðing nást með sameiningu höfuðstöðvanna, bæði með lægri leigukostnaði og lækkun rekstrarkostnaðar vegna upplýsingakerfa, viðhaldi vinnustöðva og rekstri mötuneyta. Með sameiningunni megi gera ráð fyrir töluverðri lækkun samgöngukostnaðar og tímasparnaðar, þar sem starfsmenn muni ekki þurfa að ferðast á milli staða í sama mæli og nú.

Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist á seinni hluta þessa árs og að þær standi yfir í um tvö ár.