Gallerí Fold heldur reglulega vefuppboð á listaverkum en slík uppboð hafa gengið vel síðustu tvö ár. Jóhann Ágúst Hansen, framkvæmdastjóri Gallerís Foldar, segir fleiri Íslendinga erlendis kaupa íslensk verk. Hann segir jafnframt að listaverkaverð séu komin í jafnvægi eftir miklar sveiflur síðustu ár.

VB Sjónvarp ræddi við Jóhann Ágúst.