Íslendingar ásamt Nýsjálendingum eru vingjarnlegastir allra þjóða heim að sækja, skv. nýrri skýrslu frá World Economic Forum.

Í skýrslunni eru fjölmörgum hliðum ferðaþjónustunnar gerð skil og þar á meðal fjallað um hvert viðmót heimamanna er gagnvart erlendum gestum.

Einkunnir eru gefnar á skalanum 1 til 7. Í heildina litið er Ísland í efsta sæti listans yfir vinalegustuáfangastaðina með 6,8 í einkunn.