Í nýrri samantekt Hagstofunnar um mannfjöldaþróun hér á landi kemur fram að á síðasta ári var fólksfjölgun á Íslandi með því mesta sem mælst hefur. Hinn 31. desember 2006 voru landsmenn 307.672 samanborið við 299.891 ári áður. Þetta jafngildir því að íbúum hafi fjölgað um 2,6% á einu ári. Þetta er mjög mikil fjölgun hvort sem litið er til annarra Evrópulanda eða þróunar á Íslandi undanfarna áratugi. Undanfarinn áratug hefur fólksfjölgun í álfunni í heild verið um 0,2% og í einungis örfáum löndum fjölgar íbúum um meira en 1% á ári.

Mikil fólksfjölgun nú er öðru fremur rakin til mikils aðstreymis fólks frá útlöndum. Landsmönnum með erlent ríkisfang hefur fjölgað úr tæpum 2% árið 1996 í 6% um síðustu áramót.

Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað hlutfallslega í öllum landshlutum. Mest er fjölgunin á Austurlandi en rúmlega fjórðungur íbúa þar er nú með erlent ríkisfang. Athygli vekur að karlar eru nú umtalsvert fleiri meðal innflytjenda en konur. Fram til ársins 2004 voru konur mun fleiri en karlar meðal þeirra erlendu ríkisborgara sem komu til landsins. Þetta er mest áberandi á Austurlandi og á Reyðarfirði búa nú fjórum sinnum fleiri karlar en konur.

Flestir þeirra erlendu ríkisborgara sem hér búa eru á þrítugs og fertugsaldri og hverfandi fáir aldraðir einstaklingar með erlent ríkisfang eru búsettir á landi. Það vekur líka athygli að börn með erlent ríkisfang eru fá; um það bil 2% allra barna á Íslandi eru með erlent ríkisfang. Mikill straumur útlendinga hefur leitt til þess að hlutfall einstaklinga á vinnufærum aldri hefur hækkað hér á landi og er þetta hlutfall hærra en í flestum löndum Evrópu.