Stjórn Milestone hefur ákveðið, með fyrirvara um samþykki fjármálaeftirlits í Svíþjóð og á Íslandi, að færa allar íslenskar eignir félagsins undir sænsku fjármálasamstæðuna Invik, sem verður áfram dótturfélag Milestone.

Í tilkynningu kemur fram að eftir eignafærsluna á árinu 2008 munu öll fyrirtæki Milestone verða dótturfélög Invik, þar með talin íslensku fjármálafyrirtækin Sjóvá, Askar Capital og Avant.