Íslenskir fjárfestar hafa gengið frá kaupum á hverfisteypustarfsemi Berry Global Inc en innan þeirrar deildar eru meðal annars Sæplast og Tempra sem eru félög með langa og farsæla sögu á Íslandi. Kaupandinn er Rotovia, nýstofnað félag í eigu framtakssjóðanna SÍA IV og Freyju ásamt lykilstjórnendum. Sjóður í umsjón Capital Four veitti lánsfjármögnun til kaupanna.

Hverfisteypudeild Berry Global Inc var áður hluti af Promens sem selt var úr landi árið 2015 en félagið var á þeim tíma eitt stærsta fyrirtæki landsins.

„Rotovia mun hafa sterka stöðu hérlendis og erlendis og þjóna fjölbreyttum hópi viðskiptavina í ýmsum markaðsgeirum en með sérstaka áherslu á matvælaiðnaðinn.“

Í fréttatilkynningu segir að hið nýja félag verði með 14 starfsstöðvar í 10 löndum í Evrópu og Ameríku og hjá því munu starfa alls um 800 manns, þar af um 100 starfsmenn á Íslandi.

Velta hinna keyptu eininga er um 18 milljarðar króna, þar af kemur um helmingur frá eigin vörumerkjum sem eru með „mjög sterka stöðu á markaði“, s.s. Sæplast, Tempra, iTUB og Varibox og um helmingur kemur frá framleiðslu á ýmsum hverfisteyptum vörum fyrir kröfuharða alþjóðlega viðskiptavini.

Framtakssjóðurinn Freyja er í umsjón Kviku eignastýringar og SÍA IV er í umsjón Stefnis. Fyrirtækjaráðgjöf Kviku var fjárfestunum til ráðgjafar í kaupferlinu og BBA//Fjeldco veitti lögfræðiráðgjöf.