Ívar Bragason hefur verið ráðinn lögmaður hjá Hafnarfjarðarbæ. Ívar lauk mag. jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 2008 og öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður sama ár. Ívar mun hefja störf í janúar.

Ívar hefur hin síðustu ár starfað hjá embætti borgarlögmanns en var áður hjá LOGOS lögmannsþjónustu og Mörkinni lögmannsstofu. Verkefni Ívars hjá borgarlögmanni snéru fyrst og fremst að meðferð mála fyrir héraðsdómi, samningagerð og lögfræðilegri ráðgjöf auk þess að koma að málum á sviði samkeppnisréttar og persónuverndar.

Ívar er kvæntur Sigrúnu Helgu Jóhannsdóttur, lögmanni og saman eiga þau tvær dætur. Þau eru búsett í Hafnarfirði.