Af þeim tuttugu sem sóttu um voru fimm boðaðir í viðtal. Það var að lokum Jan Aksel Harder Klitgaard sem hlaut hnossið. Þetta kemur fram á vefsíðu Hvalasafnsins.

„Jan Aksel er fæddur árið 1965 í Danmörku. Hann lauk stúdentsprófi frá menntaskólanum í Frederikssund og námi í garðyrkjuframleiðslu og garðyrkjutækni frá Tekniske Skole í Vilvorde í Danmörku. Þá hefur hann að auki lokið ýmsum námskeiðum, s.s. í náttúruvernd og landvörslu. Jan Aksel hefur frá árinu 2009 starfað sem garðyrkjustjóri sveitarfélagsins Norðurþings.  Jan leggur stund á nám til BA prófs í þjóð- og mannfræði við Háskóla Íslands og mun ljúka því vorið 2015.

Jan Aksel hefur mikinn áhuga á safnastarfi og hvernig þekkingu er miðlað til almennings um manninn og umhverfið og tengslin þar á milli í sem víðastri mynd. Um árabil tók hann virkan þátt í umræðu starfsmanna safnsins um rekstur þess, hugmyndafræði og framtíðarsýn.

Jan Aksel er giftur Sigríði Valdísi Sæbjörnsdóttur leikskólastjóra. Hann á 3 börn frá fyrra hjónabandi og tvö stjúpbörn, börnin eru öll á aldrinum 10-20 ára."