Undirritaður hefur verið samningur á milli Jarðborana og Drillmec S.p.A. á Ítalíu um kaup á stórum bor af gerðinni Soilmec HH-220. Heildarkaupverð nýja borsins er um 800 milljónir íslenskra króna og er áætlað að hann komi til landsins í maí 2006.