„Ég ætla að draga andann í sumar," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, á Morgunvaktinni á Rás 2 í morgun og hún ætti það alveg skilið eftir að fundum Alþingis var frestað í gær.

Svo ætli hún að íhuga stöðu sína fyrir haustið og hvort hún gefi áfram kost á sér til formennsku í Samfylkingunni.

Jóhanna minnti á að það yrðu prófkjör í Samfylkingunni í haust. Hún þyrfti því að gera upp hug sinn en ætlaði að nota sumarið til þess.