Jón Heiðar Gunnarsson hefur verið ráðinn til Birtingahússins þar sem hann mun starfa við birtinga- og markaðsráðgjöf.

Jón Heiðar er með meistaragráðu í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands og BA-gráðu í heimspeki og atvinnulífsfræði frá sama skóla.

Hann hefur undanfarin ár starfað sem blaðamaður á Morgunblaðinu og vann áður sem verkefnisstjóri hjá Hinu húsinu og íþróttafréttamaður á RÚV. Auk þess var hann atvinnumaður í handbolta í Frakklandi, en hann spilar nú handbolta með ÍR í efstu deild á Íslandi.