Jón Magnússon þingmaður tilkynnti í upphafi þingfundar á Alþingi í dag að hann hefði sagt sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins og úr Frjálslynda flokknum.

Hann hyggst starfa áfram á þinginu utan flokka.

Ekki kom fram í máli Jóns hvers vegna hann hefði tekið þessa ákvörðun. Ágreiningur hefur þó verið á milli hans og annarra flokksmanna að undanförnu.