Stjórn Samtaka iðnaðarins hefur ráðið Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Hann tekur við starfinu af Sveini Hannessyni frá og með næstu mánaðamótum.

Jón Steindór er fæddur og uppalinn á Akureyri og stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1978. Hann er lögfræðingur að mennt og útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 1985. Að loknu námi starfaði Jón um tíma í fjármálaráðuneytinu en síðan hjá Vinnumálasambandinu. Haustið 1988 hóf Jón Steindór störf hjá Félagi íslenskra iðnrekenda og síðan hjá Samtökum iðnaðarins frá stofnun þeirra haustið 1993, lengst af sem aðstoðarframkvæmdastjóri. Hann hefur einkum sinnt verkefnum sem tengjast alþjóðasamvinnu, s.s. EFTA, EES, ESB og WTO. Jón Steindór hefur gengt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Samtök iðnaðarins og má þar nefna að hann er stjórnarformaður Nýsköpunar­sjóðs atvinnulífsins, situr í stjórn Alþjóðamála­stofnunar Háskóla Íslands og á sæti í Ráðgjafanefnd EFTA, samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu vegna ráðningarinnar

Jón Steindór er kvæntur Gerði Bjarnadóttur, menntaskólakennara, og eiga þau þrjár dætur.

Sveinn Hannesson, sem nú lætur af störfum framkvæmdastjóra að eigin ósk, hefur verið framkvæmda­stjóri Samtaka iðnaðarins og þar áður Félags íslenskra iðnrekenda frá ársbyrjun 1992 eða nærri 16 ár. Sveinn hefur gengt margs konar trúnaðarstörfum fyrir Samtök iðnaðarins og setið í stjórnum lífeyrissjóða, Samtaka atvinnulífsins og félaga sem tengjast starfsemi Samtaka iðnaðarins.

Sveinn tekur við starfi framkvæmdastjóra Gámaþjónustunnar hf. um næstu mánaða­mót.