Jón Þorsteinn Oddleifsson
Jón Þorsteinn Oddleifsson

Um mánaðamótin hefur Jón Þorsteinn Oddleifsson störf hjá sjóðastýringafyrirtækinu Landbréfum hf. Í tilkynningu á vef Landsbréfa segir að Jón Þorsteinn hafi víðtæka reynslu á fjármálamörkuðum.

Á árunum 2011-2014 var hann meðeigandi hjá ráðgjafafyrirtækinu Calco Consulting. Á árunum 2008 til 2010 starfaði Jón Þorsteinn, sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Landsbankanum hf., en á árunum 2003 til 2008 sem forstöðumaður fjárstýringar hjá Landsbanka Íslands hf. Þar áður starfaði Jón í fimm ár í Búnaðarbanka Íslands hf.

Jón Þorsteinn er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.