Vegna seinkaðra vorleysinga er ólíklegt að öll lón Landsvirkjunar fyllist í sumar. Hálslón sker sig úr og miklar líkur á að það fyllist þrátt fyrir lága stöðu nú. Um fjórðungslíkur eru á að Blöndulón fyllist samkvæmt endurmetnum horfum. Líkur á að lón Þjórsársvæðis fyllist eru litlar.

Landsvirkjun hefur endurmetið horfur í vatnsbúskap fyrirtækisins. Staðan í miðlunum í lok vetrar var góð og mikill snjór á Þjórsársvæðinu. Óvenjulega kalt og þurrt vor hefur einkennt þróun í vatnsbúskapnum að undanförnu. Kuldinn í vor olli því að vorleysing af hálendinu hófst seint og var hæg framan af. Þetta er ein versta vorkoma í rekstrarsögu miðlana Landsvirkjunar.

Fram kemur í tilkynningu að framundan er tími leysinga af jöklum og fer eftir magni jökulbráðnunar hversu vel gengur að fylla miðlunarlónin síðar í sumar. Ákoma á jökla var umfram meðallag síðasta vetur og enn er mikill snjór á hálendinu sem gæti haft áhrif til hins betra.

Mögulegt er að Landsvirkjun þurfi að draga úr framboði á raforku á skammtímamarkaði ef staða í lónum verður undir væntingum í haust. Þó svo að öll lón fyllist ekki þá getur miðlunarstaða eftir sem áður verið ásættanleg.

Hvenær lónin fyllast og fara á yfirfall mun meðal annars ráðast af veðurfari og jökulbráðnun næstu vikna og mánaða og ekki hægt að fullyrða neitt um tímasetningar sem stendur.