KAPP ehf hefur keypt véla- og bifreiðaverkstæðið Kistufell ehf. Þar með er KAPP ehf að styrkja vélarhlutann í starfsemi sinni enn frekar hér á landi.

Vélaverkstæðið Kistufell, stofnað árið 1952 af bræðrunum Guðmundi og Jónasi Jónassonum, hefur starfað í 700 fermetra eigin húsnæði að Tangarhöfða 13. Fyrirtækið sérhæfir sig í vélaviðgerðum á all flestum tegundum af vélum, slípun sveifarása, borun á vélablokkum, þrýstiprófun hedda og samsetningum á vélum. Hjá fyrirtækinu starfa sjö bifvélavirkjar þar af eru tveir bifvélavirkjameistarar.

„Fyrirtækið verður rekið áfram með svipuðu sniði og áður og með sama mannskap. Þó er stefnt að því að efla starfsemina með alhliða þjónustu á vélasviði og þá í samvinnu með KAPP," er haft eftir Guðmundi Inga Skúlasyni, framkvæmdastjóra Kistufells og aðaleiganda fyrirtækisins frá árinu 2004. Hann segir söluverðið vera trúnaðarmál

KAPP sinnir vélaviðgerðum, selur og þjónustar kæli, frysti- og vinnslubúnað ásamt því að framleiða og smíða ryðfríar vörur fyrir matvælaiðnaðinn. KAPP framleiðir meðal annars OPTIM-ICE ísþykknivélar sem eru mjög vinsælar í sjávarútvegi.

„Kistufell er öflugt vélaverkstæði með mikla sögu og vel tækjum búið. Fyrirtækið hefur verið í rekstri af þremur kynslóðum í sömu fjölskyldu í tæpa sjö áratugi. Þessi kaup styrkja þjónustu okkar á innanlandsmarkaði mikið og gera okkur sem heild enn sterkari að sækja fram í okkar starfsemi og þjónustu fyrir viðskiptavini," segir Óskar Sveinn Friðriksson, framkvæmdastjóri KAPP.