Fjárfestingfélagið Óskabein, sem meðal annars á stóran hlut í VÍS, hefur gengið frá kaupum á fjórðungshlut í íslenska upplýsingatæknifyrirtækinu Endor. Fjárfestingin er liður í uppbyggingu Endor sem alþjóðlegs félags, en eigendur og stjórnendur stefna á markaði í Skandinavíu og Norður- Evrópu á komandi misserum.

Endor er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í að hámarka rekstrarhagkvæmni fjárfestinga í upplýsingatækni. Gunnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Endor segir í fréttatilkynningu að það sé gott fyrir ungt félag að fá til sín öfluga fjárfesta.

„Það er fagnaðarefni fyrir ungt félag að fá öfluga fjárfesta í ferðalagið. Tekjur Endor hafa aukist tífalt árlega síðustu ár og útlit er fyrir sama vöxt í ár. Viðtökur við áherslum okkar hafa verið frábærar og verkefnastaða er sterk hérlendis. Félagið hefur verið í spennandi verkefnum erlendis svo aðkoma Óskabeina að félaginu styður einstaklega vel við framhaldið,“ segir Gunnar.

Óskabein ehf. er í eigu Andra Gunnarssonar, Engilberts Hafsteinssonar, Fannars Ólafssonar, Gests Breiðfjörðs Gestssonar og Sigurðar Gísla Björnssonar og er meðal annars einn stærsti einstaki eigandi Vátryggingafélags Íslands (VÍS). Markmiðið með kaupunum er að fjármagna frekari vöxt Endor og nýta þekkingu starfsmanna til sóknar með sérhæft lausnamengi inn á nýja markaði erlendis. Engilbert og Fannar taka sæti í stjórn Endor.

„Vöxtur Endor ár frá ári hefur verið gríðarlegur, enda eru starfsmenn og stjórnendur félagsins þungaviktarmenn í greininni. Við teljum þetta rétta tímann til að taka næsta skref með félagið og mun þessi fjárfesting auðvelda félaginu að sækja á nýja markaði og vaxa,“ er einnig haft eftir Fannari Ólafssyni, nýjum stjórnarmanni í Endor og einum eiganda Óskabeins.