Borealis Data Center hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé Reykjavík Data Center af Íslandsbanka. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Borealis Data Center rekur tvö gagnaver hér á landi, á Blönduósi og Fitjum í Reykjanesbæ og nú mun hátæknigagnaverið Reykjavík Data Center á Korputorgi bætast í hóp gagnavera félagsins.

Borealis segir að Reykjavík Data Center sé hannað og byggt til að uppfylla ströngustu kröfur um áreiðanleika og upptíma. Á meðal þeirra sem gera slíkar kröfur eru fjármálafyrirtæki, stjórnvöld, heilbrigðisstofnanir og allir þeir sem vinna með viðkvæm og dýrmæt gögn.

„Reykjavík Data Center er öruggt gagnaver á góðum stað og hannað samkvæmt ítrustu kröfum til þess að hýsa kerfi með hæstu uppitímakröfur. Gagnaverið er kærkomin viðbót sem styrkir vöruframboð Borealis og verður ánægjulegt að taka á móti viðskiptavinum í þetta nýja gagnaver félagsins“, segir Björn Brynjúlfsson, forstjóri og einn af stofnendum Borealis.

Borealis, sem hét áður Etix Everywhere Borealis, var keypt af franska fjárfestingarsjóðnum Vauban Infrastructure Partners fyrir rúmu ári.

Viðskiptavinir Borealis eru fyrst og fremst erlend fyrirtæki sem mörg hver leggja ríka áherslu á að lágmarka kolefnisfótspor af starfsemi sinni. Borealis telur að aðstæður hér á landi tryggi þeim samkeppnisforskot með öruggum staðsetningum, grænni orku, afhendingaröryggi og kalda loftinu sem hentar vel til kælingar á tölvubúnaði.