Kauphöll Íslands tilkynnti í dag að hún áminnir fimm sveitarfélög fyrir að skila ársreikningum sínum of seint til Kauphallar. Kauphöllin beitir einnig févíti að fjárhæð 1,5 milljón króna. Um er að ræða sveitarfélögin Vestmannaeyjabæ, Langanesbyggð, Reykjavíkurborg, Sandgerðisbæ og Norðurþing.

Viðskiptablaðið fjallaði í síðustu viku um ársreikningaskil sveitarfélaga til Kauphallar Ísland. Kauphallaraðilum, meðal annars þeir sem hafa gefið út skuldabréf í kauphöllinni, er skylt að skila eigi síðar en 30. apríl. Tíu af 20 sveitarfélögum skiluðu hinsvegar of seint, þar á meðal þau fimm sem voru áminnt í dag.

Sveitarfélög
Sveitarfélög

Listi yfir sveitarfélög sem eru útgefendur skuldabréfa í Kauphöll og hvenær þau skiluðu ársreikningi fyrir síðasta ár. Stækka má myndina með því að smella á hana.


Það sveitarfélag sem skilaði seinast var Vestmannaeyjabær. Elliði Viðarsson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, sagði í samtali við Viðskiptablaðið í síðustu viku að ástæða skilanna sé einföld: Það gleymdist að senda ársreikninginn til Kauphallar. Hann var afgreiddur úr sveitarstjórninni 12. maí og þá sendur innanríkisráðuneytinu, sem sér um sveitarstjórnarmál.