NASDAQ OMX Iceland opnaði á dögunum nýja vefsíðu sem er liður í átakinu "Mótum framtíðina". Síðan á að vera upplýsingasíða fyrir innlenda sem erlenda fjárfesta, fyrirtæki og aðra sem hafa áhuga á viðskiptalífinu.

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að nauðsynlegt sé að byggja upp traustan markað og að þetta sé tækifæri fyrir upplýsta fjárfesta til að hafa áhrif. Þekkingarstig hingað til hafi verið ofmetið.

Vefsíðan mun vera hjálpleg fyrir mörg fyrirtæki en sérstaklega fyrir minni fyritæki sem eru í aðstöðu til að vaxa. Slóðin á síðuna er: www.nasdaqomx.com/createthefuture