Kauphöll Íslands, eða NASDAQ OMX Iceland eins og hún heitir fullu nafni, afgreiddi samtals 69 mál á síðasta ári, þar af var 21 máli vísað til Fjármálaeftirlitsins (FME) til frekari skoðunar. Kauphöllin tekur árlega saman yfirlit eftirlitsmála. Kemur þetta fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Af málunum 69 afgreiddi Kauphöllin 43 mál vegna gruns um brot á reglum um upplýsingagjöf félaga á markaði, en 26 mál sem lutu að viðskiptum með verðbréf. Mál vegna gruns um brot á reglum um upplýsingagjöf félaga á markaði voru afgreidd með mismunandi hætti; sjö mál enduðu með athugasemdum og einu máli með óopinberri áminningu. Þá voru níu mál áframsend til FME.

Tilmælum var beint til útgefanda í sex málum en tuttugu mál voru felld niður. Af þeim málum sem lutu að viðskiptum með verðbréf voru átta mál afgreidd með athugasemd. Tólf mál voru áframsend til FME til frekari skoðunar. Sex mál voru felld niður.