Greiningardeild Kaupþings banka hefur hækkað verðmat sitt á Bakkavör Group í 62,5 krónur á hlut úr 58,8 frá síðasta verðmati. Gengi félagsins var 44 krónur á hlut við lok markaðar í dag, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvaktinni. Tólf mánaða markgengi hefur verið hækkað í 70 krónur á hlut, úr 65,5 krónum.

Ástæðan hækkunar á verðmati er veiking krónu gagnvart breska pundinu, sem hefur ?jákvæð áhrif á verðmæti hlutabréfa félagsins sem eru skráð í krónum þar sem allar undirliggjandi eignir og tekjur er skráðar í pundum," segir greiningardeildin.