Kaupþing banki hefur minnkað eignarhlut sinn í Glitni í 3,54% úr 5,29%, samkvæmt flöggun til Kauphallarinnar.

Af eignarhlut Kaupþings banka eftir viðskiptin eru 499.916.637 hlutir vegna framvirkra samninga, eða 3,5 % af heildarhlutafé Glitnis, segir í tilkynningunni.