Kaupþing hefur nú enn bætt við sig í norska tryggingarfélaginu Storebrand og keypti 1,9% af heildarhlutafé fyrirtækisins í dag, að því er kemur fram í norska dagblaðinu Verdens Gang.

Kaupþing keypti 4,63 milljónir hluta á genginu 98 og var kaupverðið því 5 milljarðar íslenskra króna.

Á þriðjudaginn jók Kaupþing í Storebrand í 10,43% úr 7,8%, en bankinn fékk leyfi frá fjármálayfirvöldum í gær til að eignast 20% hlut í félaginu.