Mosaic hefur greint frá því að Kaupþing hyggist tryggja hagsmuni sína gagnvart félaginu samkvæmt ákvæðum lánasamninga fram að næstu greiðsludögum.

Í tilkynningu Mosaic segir að félagið hyggist ekki selja frá sér vörumerki en það á merkin Karen Millen, Coast, Warehouse og Oasis. Forráðamenn félagsins segjast eiga í viðræðum við Kaupþing að því er kemur fram í Retail Week.