Hlutabréf Kaupþings banka hafa hækkað um liðlega 5% í 863 milljóna króna viðskiptum í morgun, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands.

Síðasta viðskiptagengi var 929. Hlutabréf hinna bankanna hafa hins vegar sígið lítillega.

Vísitala Aðallista hækkaði strax í morgun og klukkan 10.12 var hún 1,43% hærri en í lok föstudags.