Brostnar forsendur eru fyrir kauptilboðum Landsbankans og Kaupþings í allar eignir Nýsis sem barst félaginu 19. september sl. Kauptilboðin eru því ekki lengur í gildi.

Í tilkynningu frá Nýsi til Kauphallarinnar segir að þetta komi til „í ljósi nýrrar og gjörbreyttrar stöðu.“

Nýsir mun birta árshlutareikning félagsins 13. október 2008.