Samvinnufélagið KEA hefur keypt 30% hlut í Ferro Zink hf. af Jóni Dan Jóhannssyni og á eftir viðskiptin allt hlutafé í félaginu, sem er með starfsemi á Akureyri og í Hafnarfirði.

KEA eignaðist fyrst hlut í félaginu árið 2006 og hefur frá þeim tíma bætt við eignarhlut sinn.

Í tilkynningu á vef KEA segir að Jón Dan hafi fylgt Ferro Zink í yfir hálfa öld, fyrst sem starfsmaður, síðar framkvæmdastjóri og eigandi og svo í seinni tíð sem móteigandi KEA í félaginu og stjórnarmaður.

Hann segir að nú sé komið að tímamótum hvað aðkomu sína að félaginu varðar en hún spanni yfir 61 ár.

„Þetta fyrirtæki var stofnað af föður og föðurbróður mínum og hóf það starfsemi árið 1960. Ég varð framkvæmdastjóri þess og einn eigenda árið 1989. Ég kveð félagið með söknuði og óska því, starfsfólki þess og eiganda alls hins besta,“ segir Jón Dan.

Færri en stærri fjárfestingar

Starfsemi Ferro Zink hf. er á sviði stálsölu, smiðju, málmhúðunar og verslunarrekstrar og var velta síðasta árs tæpir 3 milljarðar króna og starfsfólk um 60 talsins.

„Það þarf að taka stefnumarkandi ákvarðanir um framtíðarskipulag félagsins. Þessi fjárfesting er hluti af þeim áherslum sem við vinnum að núna sem felast í því að fækka verkefnum en um leið að stækka í þeim fjárfestingum sem KEA kemur að,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA.