Lækningavörufyrirtækið Kerecis lauk fyrir áramót sölu á 300 milljóna króna skuldabréfi til hluthafa félagsins. Skuldabréfið er með breytirétt í hlutafé. Allir fjárfestar tóku þátt og var talsverð umframeftirspurn eftir skuldabréfinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Kerecis þróar, framleiðir og markaðssetur vörur til meðhöndlunar á sköðuðum líkamsvef og húð. Vara Kerecis er affrumað Omega 3-ríkt þorskroð sem fellur til við roðflettingu á þorskflökum. Við notkun er roðbúturinn lagður í vefjaskaða á líkamanum eða sár og vaxa þá heilbrigðar frumur líkamans inn í efnið. Frumurnar hefja þar uppbyggingu á nýjum líkamsvef á meðan sáraroðið brotnar hægt niður. Sáraroð Kerecis selt til yfir 100 sjúkrahúsa og heilbrigðisstofana í Bandaríkjunum.

Fyrirtækið rekur þrjár starfsstöðvar; framleiðslu á Ísafirði, læknisfræðilegar rannsóknir í Reykjavík ásamt skrifstofu á Washington D.C. svæðinu þaðan sem sölu- og markaðsstarfi er stýrt.

Kerecis leggur um þessar mundir mesta áherslu á sölustarf í Bandaríkjunum þar sem mestur vöxtur er en yfir 30 sölumenn selja vöru félagsins í söluneti sem nær til yfir 20 fylkja. Þeir fjármunir sem aflað var með skuldabréfinu fara allir í að styrkja sölustarfsemi félagsins í Bandaríkjunum.

Guðmundur Fertram, framkvæmdastjóri Kerecis, segir í tilkynningu að söluvöxtur félagsins í Bandaríkjunum staðfesti að varan henti vel til meðhöndlunar á sykursýkissárum og sé keypt til að minnka líkur á aflimunum vegna sára. Hann nefnir jafnframt að meira en 120 sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir kaupi nú vöru félagsins reglulega og að góður vöxtur sé í sölumálum félagsins.

Kerecis tekur þátt í lækningaráðstefnu fjárfestingabankans JP Morgan í San Francisco í næstu viku, í boði bankans. Á ráðstefnunni  leiða athyglisverðustu lækningavörufyrirtæki í heiminum og fjárfestar saman hesta sína. Ráðstefnan er stærsta ráðstefnan af þessari tegund í heiminum og þátttaka í henni er mjög eftirsótt af nýsköpunarfyrirtækjum.