Við opnun markaða kl. 10 í morgun fóru fram viðskipti með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] fyrir um 2,1 milljarð króna.

Um er að ræða 90 milljón hluti á genginu 23,4 en meðalgengi með bréf í bankanum er nú 23,3 á hvern hlut.

Velta með bréf í Landsbankanum er nú 2,2 milljarðar en fyrir utan þessi viðskipti hafa farið fram 8 færslur með bréf í félaginu.

Gengi bréfa í Landsbankanum standa óbreytt það sem af er degi.