Um klukkan 11:10 í morgun fóru fram viðskipti með bréf í Glitni fyrir 1.946 milljónir króna.

Um er að ræða 130 þúsund hluti í félaginu á genginu 14,97.

Bréf í Glitni hafa lækkað í morgun um 0,3% og er gengi þeirra nú 14,95 á hvern hlut. Heildarvelta með bréf í félaginu er nú rúmir 2,3 milljarðar króna.