Stök viðskipti með bréf Glitnis [ GLB ] fyrir um 1,8 milljarða króna  fóru fram fyrir skömmu, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Nemur það næstum 1% af hlutafé bankans.

Ekki er vitað hverjir standa að baki viðskiptunum.

Gengi viðskiptanna var 14,95 krónur á hlut, sem er markaðsgengi bréfanna þegar þetta er ritað.  Glitnir hefur lækkað um 1,3% það sem af er degi. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,1%.