Samninganefnd Samtaka starfsmanna fjáramálafyrirtækja (SSF) ákvað í morgun að vísa kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins til Ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Þar segir að stíf fundahöld hafi staðið yfir að undanförnu en ekkert hafi þokast áfram í viðræðum aðila. Friðbert Traustason, formaður SSF, segir tilboð SA „algjörlega óásættanlegt“ og langt undir því sem aðrir hópar hafi samið um að undanförnu.

„Okkur er boðið 15% á meðan gerðardómur hefur nýlokið við að úrskurða BHM og fleiri 25% launahækkun. Þetta er vitaskuld óásættanlegt og deilunni miðar ekkert áfram heldur þvert á móti og því ekkert annað í stöðunni en að vísa deilunni til Ríkissáttasemjara og undirbúa baklandið fyrir frekari aðgerðir,“ segir Friðbert.