Kjarasamningur milli VR og FÍS mun gilda út nóvember á næsta ári og koma launahækkanir samkvæmt samningnum til framkvæmda frá 1. nóvember 2009.

Þetta kemur fram á vef VR. Þar kemur fram að lágmarkstaxti frá og með 1. júlí 2009 var  kr.170.750 en fer í kr. 179.500 frá og með 1. nóvember 2009.

Hjá þeim sem eru yfir töxtum kemur hins vegar 3,5% hækkun til framkvæmda frá og með 1. nóvember, svokallaður baksýnisspegill. Þessi  hækkun kemur til útborgunar þann 1. desember hjá flestum.

Sjá nánar á vef VR.