Í byrjun mars gekk Köfunarþjónustan ehf. frá kaupum á KrÓla ehf. ásamt öllum lager fyrirtækisins. Með kaupunum stefnir Köfunarþjónustan á að víkka út þjónustu við hafnir landsins sem m.a. sé að finna í vörumerkjum KrÓla, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Kristján Óli Hjaltason, eigandi KrÓla, hefur í fjóra áratugi sérhæft sig í þjónustu við hafnir landsins með flotbryggjum o.fl.  Auk flotbryggja, öryggisbúnaðar og öldubrjóta selur félagið ýmsan búnað tengdan höfnum svo sem fingur til viðlegu við flotbryggjur, tenglastólpa fyrir lýsingu og landtenginu báta, fenderlista til að verja báta, landganga ásamt öllum búnaði sem þarf til uppsetninga of þjónustu á flotbryggjum.

„Við höfum lengi haft augastað á KrÓla, vörurnar sem þeir bjóða eru þær bestu á markaðnum. Viðskiptavinir KrÓla eiga ekki að finna fyrir neinum óþægindum af þessum breytingum. Við tökum við öllum skuldbindingum fyrirtækisins gagnvart viðskiptavinum þeirra og höldum áfram að veita þá framúrskarandi þjónustu sem félagið er þekkt fyrir,“ er haft eftir Helga Hinrikssyni framkvæmdastjóri Köfunarþjónustunnar.

Köfunarþjónustan er rótgróið fyrirtæki á sviði köfunar og hefur áralanga reynslu í ýmis konar viðhalds- og viðgerðarþjónustu við hafnir. Má þar nefna viðgerðir á bryggjuþiljum, uppsetningu flotbryggja og viðhald þeirra. Ásamt því að sinna öllum almennum köfunarverkefnum.