© Aðsend mynd (AÐSEND)

Kolbeinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Eik fasteignafélagi.

Fram kemur í tilkynningu að Kolbeinn hafi undanfarin ár starfað Markaða Íslandsbanka, frá árinu 2011 hjá Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og frá 2007 hjá Markaðsviðskiptum Íslandsbanka/Glitnis banka. Áður vann á fjármálasviðið Bakkavarar Group.

Kolbeinn lauk M.Sc. gráðu í fjármálum frá Berlin School of Economics and Law árið 2011 og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005. Auk þess er hann með próf í verðbréfaviðskiptum.